Höfðingleg gjöf frá Hringskonum

Nýverið fékk Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins veglega gjöf frá Barnaspítalasjóði Hringsins. Í niðurskurði síðustu ára hafa leikfanga- og tækjakaup verið langt frá því að fylgja þörfum og brýnt að endurnýja þjálfunartæki og útvega ný sérhæfð þroska- og rofaleikföng fyrir skjólstæðinga stofnunarinnar.

Ráðstefna: Hvernig getum við tryggt gæði og stuðlað að jafnrétti í barnavernd?

Dagana 5. - 7. september næst komandi verður haldin Norræn ráðstefna um velferð barna í Hörpu tónlistar- og ráðstefnuhúsi. Fyrirlesarar koma frá Íslandi, Noregi, Svíþjóð, Danmörku, Færeyjum og Englandi.

Málþing: Hvert er förinni heitið?

Þann 27. ágúst næst komandi verður haldið málþing um akstursþjónustu fyrir fatlað fólk. Um er að ræða samvinnuverkefni Sambands íslenskra sveitarfélaga, ÖBÍ og velferðarráðuneytisins.

Þjónusta við ungmenni sem útskrifast af starfsbrautum ekki viðunandi

Hjá Landssamtökunum Þroskahjálp var á dögunum haldinn fjölmennur fundur með foreldrum ungmenna sem hafa útskrifast af starfsbrautum framhaldsskólanna. Það er ljóst að þjónusta við þennan hóp er alls ekki í viðunandi horfi, brýnt er að greina vandann og koma með tillögur að lausnum

PEERS® námskeið á haustönn 2018

PEERS® - Félagsfærniþjálfun er námskeið sem er ætlað 13-17 ára unglingum sem eru með ADHD, einkenni einhverfu, kvíða, þunglyndi og aðra erfiðleika í félagslegum samskiptum og foreldrum þeirra. Markmiðið er að auka sjálfstæði unglinganna í félagslegum aðstæðum, hjálpa þeim að eignast vini og þróa vinasamband.

Komdu að vinna á Greiningar- og ráðgjafarstöð!

Við viljum ráða tvo sérfræðinga til að starfa við snemmtæka íhlutun.

Námskeið haustannar

Námskeiðsdagskrá haustannar er orðin nokkuð þétt og nú hefur verið opnað fyrir skráningu á námskeiðið Ungmenni með einhverfu og önnur þroskafrávik.

Aðgengi á Menningarnótt - kynningarfundur

Mánudaginn 13. ágúst verður haldinn kynningarfundur um aðgengi fyrir fatlaða á Menningarnótt í Reykjavík, laugardaginn 18. ágúst n.k.

Námskeið á haustönn - Bayley smábarnapróf

Opnað hefur verið fyrir skráningu á námskeiðinu Bayley smábarnapróf en það verður haldið 4. september n.k.