Ráðstefna um SIS matskerfin þann 30. júní - skráningu lýkur!

Vekjum athygli á að skráningu á ráðstefnuna um SIS matskerfin lýkur á miðnætti í kvöld þann 23. júní. Ráðstefnan verður haldin á Grand Hóteli Reykjavík, Hvammi.

Ráðstefna um sjaldgæfa sjúkdóma

Vakin er athygli á Norrænu ráðstefnunni um sjaldgæfa sjúkdóma sem haldin verður í Kaupmannahöfn dagana 19. - 20. september 2016. Ráðstefnugjald fyrir fagfólk er DKK 3695 og fyrir aðra DKK 2995.

Ráðstefnan „Fjölskyldan og barnið - saman getum við meira“

Ráðstefnan „Fjölskyldan og barnið“ er haldin á vegum vegum kvenna- og barnasviðs hefur verið árviss viðburður á Landspítala Háskólasjúkrahúsi frá 2010. Ráðstefnan verður þann 30. september næst komandi og er ætluð starfsfólki sviðsins sem og öðru fagfólki.

Veitt úr styrktarsjóði Greiningar- og ráðgjafarstöðvar

Í dag þann 8. júní voru veittir styrkir úr styrktarsjóði Greiningar- og ráðgjafarstöðvar ríkisins til minningar um Þorstein Helga Ásgeirsson. Sjóðurinn var stofnaður 8. júní 1995 en þann dag hefði Þorsteinn Helgi orðið 5 ára gamall. Hann lést 20. janúar 1995. Frumkvöðlar að stofnun sjóðsins voru móðurbræður Þorsteins Helga, þeir Gunnar, Sveinn og Guðmundur Hanssynir, en foreldrar hans, Magnea Hansdóttir og Ásgeir Þorsteinsson, lögðu sjóðnum einnig til stofnfé. Sjóðurinn aflar fjár með sölu samúðarkorta. Markmið styrktarsjóðsins er að stuðla að aukinni þekkingu á þroskaröskunum og fötlunum barna með því að styrkja fagfólk til framhaldsmenntunar og rannsóknarstarfa. Veitt er árlega úr sjóðnum á fæðingardegi Þorsteins Helga, þann 8. júní. Hefur starfsfólk Greiningarstöðvar að jafnaði forgang að styrkjum úr sjóðnum.