Þjónusta við ungmenni sem útskrifast af starfsbrautum ekki viðunandi

Þroskahjálp boðar til fundar 29. ágúst
Þroskahjálp boðar til fundar 29. ágúst

Hjá Landssamtökunum Þroskahjálp var á dögunum haldinn fjölmennur fundur með foreldrum ungmenna sem hafa útskrifast af starfsbrautum framhaldsskólanna. Það er ljóst að þjónusta við þennan hóp er alls ekki viðunandi, brýnt er að greina vandann og koma með tillögur að lausnum.

Í íslensku samfélagi er námsframboð afar takmarkað fyrir fólk með þroskahömlun eftir að framhaldsskóla lýkur þar sem það nær sjaldnast að uppfylla inntökuskilyrði í framhaldsnám. Þá eru atvinnutækifærin allt of fá og einsleit og oftast einungis í boði að fá hlutastörf þrátt fyrir vilja og getu margra til að vinna meira. Á fundinum kom fram hjá mörgum aðstandendum að þeim þykir skorta mjög á upplýsingar og kynningu á því sem þó er í boði og að samhæfing milli ábyrgðaraðila virðist oft vera lítil eða engin.

Ákveðið var að boða til fundar 29. ágúst næst komandi kl.19.30 í húsnæði Landsamtakanna Þroskahjálpar að Háleitisbraut 13. Þar verður farið í að greina vandann betur og hvað það er sem brýnast er að laga og koma með tillögur að lausnum. Ungmenni á starfsbrautum framhaldsskólanna og þau sem hafa nýlega útskrifast af starfsbrautum eru hvött til að mæta á fundinn ásamt aðstandendum.

Sjá upprunalega frétt á vefsíðu Þroskahjálpar