Ráðstefna um fæðuinntökuerfiðleika barna í maí 2023

Norræn ráðstefna um fæðuinntökuerfiðleika barna verður haldin dagana 22. – 23. maí 2023 í Osló. Ráðstefnan er haldin annað hvert ár og er skipulögð af norrænum þverfaglegum hópi sérfræðinga sem hafa sérstakan áhuga á erfiðleikum með fæðuinntöku hjá börnum. Norðmenn sjá um skipulagningu ráðstefnunnar að þessu sinni.

Laus sæti á námskeiðinu Náttúruleg kennsla

Það eru laus sæti á námskeiðið Náttúruleg kennsla sem haldið verður 21. febrúar næstkomandi í Gerðubergi, Reykjavík. Námskeiðið er ætlað fagaðilum, starfsfólki á leikskólum sem sinna stuðningi við börn með þroskafrávik og aðstandendum. Námskeiðið nýtist öllum en fagaðilum er sérstaklega ráðlagt að sitja námskeiðið Atferlisíhlutun fyrir börn með þroskafrávik.

Námskeið á alþjóðlega Downs deginum

Ráðgjafar- og greiningarstöð stendur fyrir námskeiði um Downs heilkennið á alþjóðslega Downs deginum þann 21. mars nk. Námskeiðið er einkum ætlað fagfólki sem starfar við íhlutun, þjálfun eða kennslu 0-12 ára barna með Downs-heilkenni sem og foreldrum og öðrum aðstandendum. Fjallað verður meðal annars um algengi, helstu einkenni og heilsufar. Farið verður yfir þroska og hegðun barna með Downsheilkenni og fjallað um íhlutunarleiðir sem gagnast börnum með heilkennið.

Við leitum að lækni!

Ráðgjafar- og greiningarstöð leitar að öflugum lækni til starfa sem hefur brennandi áhuga á að starfa að fjölbreyttum verkefnum tengdum fjölskyldum fatlaðra barna með þverfaglegu teymi starfsfólks stofnunarinnar. Barnalæknar auk unglækna sem eru í sérfræðinámi í barnalækningum eða á leið í slíkt nám eru sérstaklega hvattir til að sækja um.

Laus sæti á Systkinasmiðju fyrir eldri börn

Það eru laus sæti á Systkinasmiðju fyrir eldri börn á aldrinum 12 - 14 ára sem haldin verður næstu helgi 4. - 5. febrúar frá kl. 12.00 - 15.00. Systkinasmiðjan er fyrir eldri börn sem eiga systkini með fötlun og/eða þroskafrávik. Á námskeiðinu eru ýmis verkefni leyst, börnin ræða stöðu sína innan fjölskyldunnar, skólans og meðal vina. Einnig er það rætt hvernig er leyst úr erfiðleikum sem verða á vegi barnanna, meðal annars vegna systkina og margt fleira.