Ráðgjafar- og greiningarstöð lokar vegna sumarleyfa frá 4. - 29. júlí 2022

Ráðgjafar- og greinngarstöð verður lokuð vegna sumarleyfa starfsfólks frá 4. - 29. júlí 2022. Stofnunin opnar að nýju eftir sumarleyfi þriðjudaginn 2. ágúst.

Ný evrópsk rannsókn um þjónustuferli ungra einhverfra barna

Nýlega birtist grein í tímaritinu Autism sem nefnist: Determinants of satisfaction with the detection process of autism in Europe: Results from the ASDEU study. Tveir starfsmenn Ráðgjafar- og greiningarstöðvar, þau Evald Sæmundsen rannsóknarstjóri og Sigríður Lóa Jónsdóttir sálfræðingur, eru meðhöfundar, en greinin er einn afrakstur áralangs Evrópusamstarfs, Autism Spectrum Disorders in the European Union (ASDEU).

Haustdagskrá ADHD samtakanna liggur fyrir

Haustdagskrá ADHD samtakanna liggur nú fyrir og sem fyrr eru fjölbreytt fræðsla í boði fyrir aðstandendur barna með ADHD. Svo sem námskeið fyrir 9-12 ára stráka annarsvegar og stelpur hinsvegar, auk tveggja fjarnámskeiða fyrir starfsfólk skóla, frístundaheimila og íþróttafélaga sem vinna með börnum með ADHD

Nýtt kennsluefni um kynfræðslu

Ráðgjafar- og greiningarstöð hefur undanfarið eitt og hálft ár tekið þátt í Erasmusverkefni í samstarfi við þrjár aðrar Evrópuþjóðir; Rúmeníu, Grikkland og Belgíu um gerð kynfræðsluefnis fyrir ungmenni með frávik í taugaþroska. Vinnan við gerð þessa efnis er á lokametrunum. Kennarar í sérdeild Fellaskóla og Klettaskóla munu forprófa kennsluefnið í september og október. Eftir að forprófun lýkur verður hægt að tengjast vefslóð kennsluefnisins í gegnum vefslóð Ráðgjafar- og greiningarstöðvar. Námsefnið verður verður endurgjaldslaust.

Ráðgjafi í snemmtækri íhlutun óskast

Ráðgjafar- og greiningarstöð auglýsir laust til umsóknar starf ráðgjafa í snemmtækri íhlutun á Yngri barna sviði. Á sviðinu er veitt þjónusta við ung börn og börn á leikskólaaldri og fjölskyldur þeirra. Leitað er að einstaklingi sem hefur brennandi áhuga á að starfa að fjölbreyttum verkefnum tengdum fjölskyldum fatlaðra barna með þverfaglegu teymi starfsfólks stofnunarinnar.

Sálfræðingur óskast til starfa

Ráðgjafar- og greiningarstöð auglýsir laust til umsóknar starfs sálfræðings á Yngri barna sviði. Á sviðinu er veitt þjónusta við ung börn og börn á leikskólaaldri og fjölskyldur þeirra. Leitað er að einstaklingi sem hefur brennandi áhuga á að starfa að fjölbreyttum verkefnum tengdum fjölskyldum fatlaðra barna með þverfaglegu teymi starfsfólks stofnunarinnar.