Markmið ráðstefnunnar er að vekja athygli á mikilvægi þess að huga að ólíkum þörfum hvað kynheilbrigði varðar til að mæta betur börnum með fjölbreyttan taugaþroska, allt frá fyrstu aldursárum yfir á fullorðinsaldur.
Sjónum verður beint að stöðu og þjónustu í þessum málaflokki sem og kennslu og fræðslu um kynheilbrigði fyrir börn og ungmenni sem læra eftir óhefðbundnum leiðum og þurfa aðlögun í kennslu um kynheilbrigði.