Dagur einhverfu er 2. apríl

Alþjóðlegur dagur einhverfu er að þessu sinni tileinkaður stúlkum og konum á einhverfurófi. Af því tilefni beina Sameinuðu þjóðirnar sérstakri athygli að þeirri mismunun og áskorunum sem einhverfar konur mæta í lífinu. Bent er á mikilvægi valdeflingar til að auka þátttöku þeirra á öllum sviðum samfélagsins ekki síst þegar kemur að stefnumörkun og ákvarðanatöku.

Upptökur frá málþingi Einhverfusamtakanna

Einhverfusamtökin stóðu fyrir málþingi um tómstundir fyrir skömmu og dagskráin var fjölbreytt. Málþing sem tengjast málefnum barna og fullorðinna á einhverfurófi er árviss viðburður og haldið í tengslum við alþjóðlegan dag einhverfu sem er 2. apríl.

Alþjóðlegur dagur Downs-heilkennis

Í dag er alþjóðlegur dagur Downs-heilkennis en 21. mars ár hvert er tileinkaður heilkenninu og honum fagnað víða um heim. Sameinuðu þjóðirnar tilkynntu árið 2011 að dagurinn skyldi hafa þetta hlutverk og dagsetningin er ekki tilviljun því Downs-heilkenni orsakast af þrístæðu á litningi 21.

Umsóknarfrestur framlengdur: Iðjuþjálfi óskast til starfa á Greiningar- og ráðgjafarstöð

Iðjuþjálfi óskast til starfa á Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins. Um er ræða afleysingastöðu á fagsviði langtímaeftirfylgdar, til að minnsta kosti sex mánaða, með möguleika á fastráðningu seinna.

Ráðgjafi í atferlisíhlutun óskast til starfa á Greiningar- og ráðgjafarstöð

Ráðgjafi í atferlisíhlutun óskast til starfa á fagsviði langtímaeftirfylgdar á Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins. Starfssvið: Ráðgjöf og eftirfylgd til fjölskyldna og fagfólks vegna barna með alvarleg þroskafrávik og íþyngjandi hegðun. Vinna í þverfaglegu teymi. Þátttaka í fræðslu- og rannsóknarstarfi.

Dagur sjaldgæfra sjúkdóma 2018

Dagur sjaldgæfra sjúkdóma var í gær þann 28. febrúar. Degi sjaldgæfra sjúkdóma er fagnað ár hvert á síðasta degi febrúarmánaðar.