Sigríður Lóa Jónsdóttir ver doktorsritgerð um snemmgreiningu einhverfu

Föstudaginn 26. maí nk. ver Sigríður Lóa Jónsdóttir, sálfræðingur á Ráðgjafar- og greiningarstöð, doktorsritgerð sína í lýðheilsuvísindum við Læknadeild Háskóla Íslands. Ritgerðin ber heitið: Að bera kennsl á einhverfu snemma. Early detection of autism.

Góður rómur gerður að vorráðstefnu Ráðgjafar- og greiningarstöðvar

Vorráðstefna Ráðgjafar- og greiningarstöðvar var haldin 11. og 12. maí sl. Tæplega 400 manns sóttu ráðstefnuna að þessu sinni en hún var haldin bæði á Hilton Reykjavík Nordica hótelinu og í streymi fyrir þau sem ekki áttu heimangengt. Góður rómur var gerður að ráðstefnunni og þeim erindum sem þar voru flutt, svo sem í könnun þátttakendur voru beðnir að taka þátt í eftir að henni lauk. Einnig komu fram í könnuninni margar góðar hugmyndir frá þátttakendum vegna vorráðstefnu RGR 2024 sem skipuleggjendur eru þakklátir fyrir og munu taka tillit til.

Vorráðstefna Ráðgjafar- og greiningarstöðvar hefst í dag, 11. maí

Vorráðstefna Ráðgjafar- og greiningarstöðvar (RGR) hefst í dag fimmtudaginn 11. maí og stendur fram á föstudag, 12. maí. Ráðstefnan hefur verið haldin árlega að vori á undanförnum áratugum og er þetta í 38. skiptið sem hún er haldin. RGR heldur úti öflugu fræðslustarfi og námskeiðsdagskrá á vor- og haustönn á hverju ári en óhætt er að segja að metnaðarfull dagskrá ráðstefnunnar, þar sem málefni fatlaðra barna og barna með þroskafrávik hafa verið í brennidepli, sé kóróna fræðslustarfsins. Ráðstefnan, sem er bæði staðbundin og send út í streymi, er opin öllum og hægt er að skrá sig til leiks allt þar til dagskráin hefst.

Kerfisbilun í vefkerfi RGR í gær

Bilun kom upp í vefkerfi Ráðgjafar- og greiningarstöðvar (RGR) í gærkvöldi sem olli því að fréttatilkynning um vorráðstefnu RGR var send allt að 40 sinnum á móttakendur á póstlista. Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta hefur valdið móttakendum. Þetta hefur ekki gerst áður í fræðslustarfinu og munum við leita leiða til að tryggja að þetta gerist ekki aftur.

Skráning á vorráðstefnu Ráðgjafar- og greiningarstöðvar í fullum gangi

Vorráðstefna Ráðgjafar- og greiningarstöðvar (RGR) verður haldin á Reykjavík Hilton Nordica nk. 11. og 12. maí nk. Ýmis mál í deiglunni verða til umfjöllunar undir yfirskriftinni: Fagmennska og framsækni í þjónustu við börn með fatlanir. Fögnum fjölbreytileikanum er yfirskrift erindis Guðmundar Ármanns Péturssonar formanns Félags áhugafólks um Downs heilkenni. Skólafólk í Kópavogi kynnir verkefnið, Hvað gerum við þegar beita þarf líkamlegu inngripi og/eða nota einveruherbergi í skólastarfi? Fagmennska, sjálfsrækt fagfólks, farsældarlögin í framkvæmd, rafrænt aðgengi fyrir alla, þjónusta við fötluð börn af erlendum uppruna, íþróttastarf fatlaðra, jafningjafræðsla og margt fleira er á dagskránni.