Skráning hafin á AEPS færnimiðað matskerfi

Skráning er hafin á námskeiðið AEPS færnimiðað matskerfi sem haldið verður 14. og 15. febrúar 2019.

MST fjölkerfameðferð - afmælisráðstefna

Þann 27. nóvember næst komandi verður haldin 10 ára afmælisráðstefna MST meðferðarinnar. Ráðstefnan verður á Grand Hótel Reykjavík (Háteigur).

Málþing um heilbrigðismál

Vakin er athygli á málþingi málefnahóps Öryrkjabandalags Íslands (ÖBÍ) um heilbrigðismál sem haldið verður 20. nóvember næst komandi á Grand hóteli Reykjavík kl. 14:00-17:00.

Greiningar- og ráðgjafarstöð óskar eftir ráðgjafa í snemmtækri atferlisíhlutun!

Ráðgjafi óskast til starfa á yngri barna sviði. Um er að ræða afleysingastöðu til eins árs. Starfssvið • Ráðgjöf og eftirfylgd til fjölskyldna og fagfólks vegna barna á leikskólaaldri með alvarleg þroskafrávik. • Vinna í þverfaglegu teymi. • Þátttaka í fræðslustarfi.

Fjölmenningarþing Reykjavíkurborgar

„Tölum saman“ - fjölmenningarþing Reykjavíkurborgar verður haldið í fmmta sinn laugardaginn 17. nóvember næst komandi. Þingið verður í Ráðhúsi Reykjavíkur og stendur frá kl. 09:00-16:00.

Námskeið á vorönn 2019

Opnað hefur verið fyrir skráningu á námskeiðið Kynheilbrigði: Hagnýtar kennsluaðferðir sem nýtast börnum og unglingum með þroskafrávik.

Málþing: Aðgengi að réttlæti

Félag um fötlunarrannsóknir og Rannsóknasetur í fötlunarfræðum við Háskóla Íslands bjóða til málþings föstudaginn 9. nóvember. Málþingið „Aðgengi að réttlæti“ verður á Grand Hóteli og stendur frá 09:00-15:00. Það er ætlað öllu áhugafólki um málefnið.

Tímamót í velferðarþjónustu: Sjálfstæði - nýsköpun - samvinna

Dagana 7. og 8. nóvember næst komandi mun Velferðarráðuneytið í samvinnu við Nýsköpunarmiðstöð Íslands og Sjálfsbjörg, landssamband hreyfihamlaðra, halda ráðstefnu og málstofu dagana á Hótel Hilton undir yfirskriftinni „Tímamót í velferðarþjónustu“.

Ráðstefna: Sigurför fyrir sjálfsmyndina

Ráðstefnan „Sigurför fyrir sjálfsmyndina“ verður haldin laugardaginn 10. nóvember 2018 á Radisson Blu Hótel Sögu frá kl. 10:15-13:00. Á ráðstefnunni segja keppendur, aðstandendur og þjálfarar frá þátttöku og undirbúningi í heimsleikum Special Olympics og kynning verður á Unified-keppnum þar sem systkini, vinir og foreldrar geta verið með í liðum.

Norræn ráðstefna um sjaldgæfa sjúkdóma

Dagana 15. - 16. maí 2019 verður fimmta norræna ráðstefnan um sjaldgæfa sjúkdóma haldin í Osló. Þar verður fjölbreytt efni á dagskrá flutt af fagfólki, fólki með sjaldgæfa sjúkdóma og aðstandendum þeirra.