Námskeiðið Skólafólk, ráð og leiðir haldið 6. nóvember

RGR vekur athygli á lausum sætum á námskeiðinu Skólafólk, ráð og leiðir sem haldið verður þann 6. nóvember nk. frá kl. 9.00 – 15.00 fyrir starfsfólk grunn- og framhaldsskóla sem eru með nemendur með frávik í taugaþroska og vilja auka við þekkingu sína. Námskeiðið verður haldið í Rauða kross salnum í Hafnarfirði, Strandgötu 24.

Mikið af hagnýtum ráðum, leiðum og verkfærum eru til og verða kynntar á þessu námskeiði. Farið verður í fyrirbyggjandi aðferðir, hvernig við gerum æskilega hegðun sýnilegri í skólanum og einblínt á jákvæðar aðferðir. Mælt er með að horfa á styrkleika og áhugamál nemenda en auk þess mikilvægt að skoða hvernig við tökumst á við erfiða hegðun í skólaumhverfinu. Æskilegt er að þátttakendur sem nota í sínu starfi vinnukerfi með nemendum ( t.d. umbunarkerfi,  námskerfi, sjónrænt skipulag, félagsfærnisögur) mega hafa þau meðferðis. Námskeiðið er í formi fyrirlestra, umræðna og hópavinnu.  

Nánari upplýsingar og skráning er hér.