Vorráðstefna 2018 - glærur

Vorráðstefna Greiningar- og ráðgjafarstöðvar ríkisins sem var haldin 26. og 27. apríl 2018 var mjög vel sótt en rúmlega 500 þátttakendur mættu. Ráðstefnan var sú 33. í röðinni og í ár var umfjöllunarefnið „Mátturinn í margbreytileikanum! Einhverfa og skyldar raskanir - þekking og leiðir í þjónustu við börn og ungmenni“. 

Starfsmenn Greiningar- og ráðgjafarstöðvar ríkisins þakka fyrirlesurum, fundarstjórum og gestum fyrir samveruna og við hlökkum til að sjá ykkur að ári. Dagsetning vorráðstefnu 2019 verður auglýst fljótlega.

Hægt er að skoða glærur frá ráðstefnunni með því að smella á myndina hér fyrir neðan.

Vorráðstefna 2018 - glærur