Vorráðstefna Greiningar- og ráðgjafarstöðvar 2020 - opið fyrir skráningu!

Nú hefur verið opnað fyrir skráningu á árlega vorráðstefnu Greiningar- og ráðgjafarstöðvar sem haldin verður 7. og 8. maí næstkomandi. Yfirskrift ráðstefnunnar í ár er Mennt er máttur – Fjölbreytt þjónusta fyrir nemendur með sérþarfir á öllum skólastigum.

Á öllum skólastigum er margbreytilegur hópur nemenda sem þarf mismunandi kennslu í hinu daglega starfi. Mikilvægi endurtekninga og æfinga er lykilatriði hjá börnum og ungmennum með röskun í taugaþroska og með markvissum vinnubrögðum má hafa jákvæð áhrif á þroska og færni. Greiningar- og ráðgjafarstöð hefur ætíð lagt áherslu á einstaklingsmiðaða nálgun og á öllum skólastigum eru einstaklingsmiðaðar áætlanir. Áhersla verður lögð á nemendur með erlendan bakgrunn, m.a. kynnt stöðumat fyrir nýja nemendur af erlendum uppruna sem búið er að þýða úr sænsku og staðfæra hér á landi og verið er að innleiða í fjórum grunnskólum. Fjarkennsla, upplýsingatækni, innleiðing geðræktarstarfs, farteymi, þjónustuúrræði sveitarfélaga, skólaforðun, rafíþróttir og hefðbundnara íþrótta- og tómstundastarf eru einnig meðal efnis sem fjallað verður um á vorráðstefnunni í ár og eins og vanalega munu raddir barna og foreldra heyrast.

Allar nánari upplýsingar og skráning.