Tilraunaverkefni um sveigjanleika í þjónustu við fötluð ungmenni „Frá barni til fullorðins“

Hjá velferðarsviði Reykjavíkurborgar fer nú af stað nýtt verkefni um þjónustu við fötluð ungmenni á aldrinum 17 - 22 ára. Verkefnið stendur yfir í þrjú ár og er tilgangur þess að auðvelda ungmennum að flytja að heiman og búa fjarri foreldrum. Verkefnið á að létta álagi af fjölskyldum fatlaðra ungmenna sem þurfa mikla þjónustu án þess að þau þurfi að flytjast af heimili sínu á meðan verkefnið stendur yfir. Auglýst verður eftir þátttakendum 1. mars næstkomandi.

Velferðarsvið hvetur fötluð ungmenni sem hafa áhuga á þátttöku og uppfylla þau skilyrði sem koma fram í reglum með tilraunaverkefninu að sækja um.

Nánari upplýsingar má finna hér