Talmeinafræðingur óskast!

Ertu með brennandi áhuga á að starfa að fjölbreyttum verkefnum tengdum fjölskyldum fatlaðra barna með þverfaglegu teymi starfsfólks Greiningar- og ráðgjafarstöðvar ríkisins? Auglýst er laust til umsóknar starf talmeinafræðings á sviði Langtímaeftirfylgdar. Á sviðinu er veitt þjónusta við börn og unglinga að 18 ára aldri, sem þurfa sérhæfða eftirfylgd og ráðgjöf. 

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Mat á málþroska og tjáskiptafærni
  • Úrvinnsla prófgagna, túlkun niðurstaðna, skráning og skýrslugerð
  • Greining, ráðgjöf og eftirfylgd vegna barna/unglinga með alvarlegar málþroskaraskanir og tjáskiptavanda
  • Vinna í þverfaglegum teymum, samstarf við aðra fagaðila og talmeinafræðinga innan og utan stofnunar
  • Mat á viðeigandi tjáskiptaleiðum og sinna faglegri ráðgjöf tengt óhefðbundnum tjáskiptum (Alternative and Augmentative Communication, AAC)
  • Þátttaka í fræðslu- og þróunarstarfi

Hæfniskröfur:

  • Íslenskt starfsleyfi sem talmeinafræðingur
  • Þekking og áhugi á óhefðbundnum tjáskiptaleiðum
  • Þekking og áhugi á tölvu- og tæknitengdum lausnum er æskileg
  • Mjög góð samskipta- og samstarfshæfni og færni til að starfa í teymi
  • Góð færni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku
  • Skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum

Frekari upplýsingar um starfið:

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert. Umsókn um starfið skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi til að gegna starfinu. Sótt er um starfið á starfatorg.is. Miðað er við að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsókn getur gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar þessarar. Á Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins starfa um 60 starfsmenn. Hlutverk stofnunarinnar er að tryggja að börn með alvarlegar þroskaskerðingar sem leitt geta til fötlunar síðar á ævinni fái greiningu, ráðgjöf og önnur úrræði sem bæta lífsgæði þeirra. Sjá nánar www.greining.is

Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins er framsækin stofnun með fjölskylduvæna starfsmannastefnu sem býður m.a. upp á sveigjanlegan vinnutíma og er lögð áhersla á þróun í starfi og tækifæri til sí- og endurmenntunar.  Gildi stofnunarinnar eru fagmennska, framsækni, velferð og virðing. Nýir starfsmenn fá handleiðslu og starfsþjálfun á aðlögunartíma. 

Starfshlutfall er 50%. Umsóknarfrestur er til og með 18.10.2021. Nánari upplýsingar veitir Hrönn Björnsdóttir - hronn.bjornsdottir@greining.is - 510 8400.

Smelltu hér til að sækja um starfið