Sumarnámskeið fyrir unglinga með röskun á einhverfurófi:

Umsjónarfélag einhverfra ætlar að halda þrjú sumarnámskeið fyrir unglinga, 12-18 ára (fædd 1993-1999), í júní og júlí.  Verða þau með svipuðum hætti og í fyrrasumar. Hvert námskeið stendur í tvær vikur og eru þau haldin í Valhúsaskóla á Seltjarnarnesi.

Námskeiðin verða 20.6-1.7, 4.7-16.7 og 18.7-29.7.  Námskeiðisgjald verður kr. 20.000,-. 

Er þetta samstarfsverkefni Soroptimistafélags Reykjavíkur og Umsjónarfélags einhverfra. Skráningin fer fram á netinu á síðunni  http://minnstyrkur.wordpress.com

Skráningin verður opin til 6. maí.  Við hvetjum ykkur til að skrá sem fyrst og tilgreina sem best það sem spurt er um í skráningarforminu.  Ef eitthvað er óljóst, þá skulið  þið senda tölvupóst á netfangið einhverf@vortex.is eða hringja i Sigrúnu í síma 8972682.

Nánari upplýsingar á  http://minnstyrkur.wordpress.com