Skref fyrir skref - Aðgangur að kennsluefninu

Nú er hægt að kaupa aðgang að kennsluefninu Skref fyrir skref. Kennsluefnið samanstendur af myndskeiðum, lesefni, viðtölum, sýnikennslu og útskýringamyndum, þar sem farið er yfir þann grunn í hagnýtri atferlisgreiningu sem nauðsynlegt er að hafa í upphafi íhlutunar.  Til að kaupa aðgang er farið inn á  vefsíðuna www.simplestepsautism.com.  Hann gildir ótímabundið og veitir aðgang að efninu á íslensku og átta öðrum tungumálum.

Kostnaður við aðgang/leyfi er 79 EUR (u.þ.b.13.000 ISK). Aðgangur er keyptur með því að fara inn á vefsíðuna.
Þeir sem óska eftir að kaupa 10 leyfi eða fleiri á sama tíma geta sótt um afslátt. Þeir þurfa að senda tölvupóst til: info@simplestepsautism.com.

Ef ætlunin er að nota efnið til kennslu í háskóla er hægt að fá leyfi sem kostar EUR 30 á nemanda.
Á síðasta ári voru gerð nokkur ný kennslumyndbönd á ensku, sem hafa ekki verið þýdd og er því eingöngu að finna á enska hluta síðunnar. Gert er ráð fyrir því að nýtt efni bætist stöðugt við, en þýðing og staðfærsla á nýju efni er háð því að styrkir fáist til verksins. Sigríður Lóa Jónsdóttir sálfræðingur á Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins er verkefnisstjóri