Sjúkraþjálfari óskast á Ráðgjafar- og greiningarstöð

Ráðgjafar- og greiningarstöð auglýsir laust til umsóknar starf sjúkraþjálfara á Yngri barna sviði. Á sviðinu er veitt þjónusta við ung börn og börn á leikskólaaldri og fjölskyldur þeirra. Leitað er að einstaklingi sem hefur brennandi áhuga á að starfa að fjölbreyttum verkefnum tengdum fjölskyldum fatlaðra barna með þverfaglegu teymi starfsfólks stofnunarinnar. Viðkomandi mun einnig vinna verkefni á sviði Langtímaeftirfylgdar en þar er veitt þjónusta við börn og unglinga að 18 ára aldri, sem þurfa sérhæfða eftirfylgd og ráðgjöf, og fjölskyldur þeirra.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Mat á skyn- og hreyfifærni með viðurkenndum próf- og matstækjum og klínískum athugunum
  • Úrvinnsla og túlkun niðurstaðna ásamt mati á íhlutun eða úrræðum
  • Skráning og skýrslugerð
  • Ráðgjöf og eftirfylgd til fjölskyldna og fagfólks vegna barna með raskanir í taugaþroska
  • Sjúkraþjálfun ungra barna í smábarnateymi
  • Vinna í þverfaglegum teymum innan og utan stofnunar
  • Þátttaka í fræðslustarfi innan og utan stofnunar
  • Þátttaka í rannsóknarstarfi

 

Hæfniskröfur

  • Íslenskt starfsleyfi sem sjúkraþjálfari
  • Þekking og/eða reynsla sem nýtist í starfi
  • Mjög góð samskipta- og samstarfshæfni og færni til að starfa í teymi
  • Góð færni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku
  • Skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum

 

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag sjúkraþjálfara hafa gert.

Umsókn um starfið skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi til að gegna starfinu. Sótt er um starfið á starfatorg.is. Miðað er við að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsókn getur gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar þessarar.

Á Ráðgjafar- og greiningarstöð starfa um 60 starfsmenn. Hlutverk stofnunarinnar er að tryggja að börn með alvarlegar þroskaskerðingar sem leitt geta til fötlunar síðar á ævinni fái greiningu, ráðgjöf og önnur úrræði sem bæta lífsgæði þeirra. Sjá nánar www.rgr.is. Ráðgjafar- og greiningarstöð er framsækin stofnun með fjölskylduvæna starfsmannastefnu sem býður m.a. upp á sveigjanlegan vinnutíma og lögð er áhersla á þróun í starfi og tækifæri til sí- og endurmenntunar. Gildi stofnunarinnar eru fagmennska, framsækni, velferð og virðing. Nýir starfsmenn fá handleiðslu og starfsþjálfun á aðlögunartíma

Starfshlutfall er 80-100%

Umsóknarfrestur er til og með 19.02.2024

 

Nánari upplýsingar veitir

Helga Kristinsdóttir, helga.kristinsdottir@rgr.is

Sími: 510 8400

Sækja um starf hér