PECS námskeið - Grunnnámskeið í PECS


Myndræna boðskiptakerfið PECS (Picture Exchange Communication System) er óhefðbundin boðskiptaleið þróuð af Frost og Bondy (1994) fyrir börn með einhverfu, en hefur verið notað með fólki á öllum aldri með mismunandi fatlanir. Aðaláherslan í PECS er að þjálfa frumkvæði til að hafa boðskipti við aðra. Einstaklingurinn sem notar PECS lærir að nota mynd til þess að biðja um hlut/athöfn og annað sem hann hefur þörf á að tjá sig um. PECS er vel skipulagt kerfi í sex stigum þar sem þjálfuð er stigvaxandi færni til boðskipta.

Á námskeiðinu verður fjallað um fræðilegan grunn og þær aðferðir sem eru notaðar til að þjálfa stigin sex í PECS.

Megin áhersla á þessu námskeiði verður lögð á að þátttakendur læri innlögn og þjálfun á fyrstu þremur stigum PECS. Auk þess verða kynntar leiðir til að skrá framvindu og meta árangur þjálfunarinnar.

Kennslan fer fram með fyrirlestrum, umræðum og  með sýnikennslu. Sýnd verða dæmi um PECS þjálfun á myndböndum og þátttakendur fá tækifæri til að æfa grunnatriðin í þjálfunartækninni.

Umsjónarmenn námskeiðsins eru Guðný Stefánsdóttir þroskaþjálfi og Sigrún Kristjánsdóttir þroskaþjálfi.


Námskeiðið verður haldið dagana 5 og 6 júní 2012 frá klukkan 9:00 ? 12:00 báða dagana, í þjónustumiðstöð Laugardals og Háaleitis Síðumúla 39.


Þátttökugjald er 16.000 (foreldar greiða helming þáttökugjalds).


Þátttakendur eru beðnir um að skrá sig með því að senda tölvupóst á netfangið: gudnyst@gmail.com