Ný heimasíða Greiningar- og ráðgjafarstöðvar ríkisins

Með mikilli ánægju opnum við í dag nýja og bætta heimasíðu. Starfsemi stofnunarinnar hefur tekið miklum breytingum að undanförnu og er hönnun heimasíðunnar gerð með hliðsjón af þeim breytingum. Nýju heimasíðunni er ætlað að varpa ljósi á breyttar áherslur í starfseminni og bæta upplýsingaflæði til notenda meðal annars með einfaldri framsetningu efnisins.

Stefna hugbúnaðarhús sá um hönnun í samvinnu við fræðslu- og kynningarsvið Greiningarstöðvar og eru myndir á síðunni eftir Sigrúnu Eldjárn.Heimasíðan er unnin með hliðsjón af viðmiðunarreglum fyrir opinbera vefi.

Allar ábendingar varðandi efni og framsetningu eru vel þegnar.