Lífsleikni fyrir stúlkur með röskun á einhverfurófi


Námskeið og umræðutímar á vegum Umsjónarfélags einhverfra og Þekkingarseturs Áss um félagstengsl og kynímynd.

Fyrir stúlkur með röskun á einhverfurófi á aldrinum 13-15 ára og 16-20 ára.

Í hverjum hópi verða 3-5 stúlkur og mun hver stúlka koma í viðtal áður en námskeiðið hefst til að ræða væntingar og sérstakar óskir. Þetta skiptir máli fyrir samsetningu hópanna. Hóparnir hittast í sex skipti, tvær klukkustundir í senn. Ákveðin þemu eru höfð að leiðarljósi og hefst hver tími með fræðsluinnleggi sem verða síðan rædd frekar með umræðum og verkefnum.

Þemu:
-
Sjálfsmynd og tilfinningar
-
Samskipti við vini og fjölskyldu
-
Strákar og Netið
-
Kynlif, kynsjúkdómar og getnaðarvarnir
-
Umgengni og ábyrgð

Tímasetning: Verður skipulögð í samráði við þátttakendur.

Leiðbeinendur:
Laufey Gunnarsdóttir þroskaþjálfi, María Jónsdóttir félagsráðgjafi og Þóra Leósdóttir iðjuþjálfi.

Skráning og upplýsingar:
Hjá Maríu í síma 414 0500 eða sendið tölvupóst á netfangið maria@styrktarfelag.is með upplýsingum um nafn og síma og haft verður samband.

Þátttökugjald:kr. 15.000.-

Staðsetning: Stjörnugróf 9 við Blesugróf (Lækjarás)