Knattspyrnunámskeið fyrir fatlaða og þroskahamlaða krakka/unglinga í sumar

Knattspyrnunámskeið Aspar og Víkings

Íþróttafélagið Ösp og Knattspyrnufélagið Víkingur munu standa að knattspyrnunámskeiðum fyrir fatlaða og þroskahamlaða krakka/unglinga í sumar.

? Um er að ræða tvö tveggja vikna námskeið í senn og hefst fyrsta námskeið 11. júlí og er til 22. júlí og hið seinna byrjar 25. júlí og er til 5. ágúst.
? Hvert námskeið er frá mánudegi til föstudags , helgar eru ekki með taldar.
? Hvert násmkeið byrjar kl.08.30 á hverjum degi og stendur til kl.12
? Krakkar eiga að koma með nesti með sér sem verður snætt í kaffitímanum/pásunni sem tekin er í kringum kl.10

Markmið námskeiðsins eru:

? Bæta grunntækni í knattspyrnu
? Stuðla að heilsusamlegri hreyfingu
? Stuðla að góðum félagsskap
? Auka áhuga á knattspynu og hreyfingu almennt
? Stuðla að jákvæðri upplifun af knattspyrnu og hreyfingu
? Að allir skemmti sér og læri eitthvað
Kostnaður er kr 8.000,- fyrir námskeið

Nánari upplýsingar veitir Darri McMahon í síma 8678049 eða Ólafur Ólafsson formaður. Sími 8998164. Netfang: ospin@ospin.is