Heiðursviðurkenning frá utanríkisráðherra Japan

Þann 18.nóvember s.l. hlaut dr. Tryggvi Sigurðsson, sviðstjóri á Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins, heiðursviðurkenningu frá utanríkisráðherra Japans fyrir framúrskarandi framlag til japanskrar menningar á Íslandi og í Evrópu. Þessi viðurkenning er veitt 68 einstaklingum árið 2011, þar af 52 útlendingum. Heiðursviðurkenningin var afhent við hátíðlega athöfn í japanska sendiráðinu á Íslandi að viðstöddum sendiherrahjónum Japans á Íslandi, fjölskyldu Tryggva, vinum og starfsfélögum á Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins.

Hér má finna fréttatilkynning frá sendiráði Japans á Íslandi.


Heiðursviðurkenning - Tryggvi Sigurðsson allur hópurinn


Heiðursviðurkenning - Tryggvi Sigurðsson ásamt fjölskyldu