Frjálsíþróttaæfingar fatlaðra ungmenna 13 ára og yngri

Mynd af frjalsithrottaaefingar 1

Fimmtudaginn 4.október hefst frjálsíþróttanámskeið fyrir hreyfihömluð ungmenni 13 ára og yngri. Námskeiðið er kennt á fimmtudögum frá kl 16-17 og eru undir stjórn Ingólfs Guðjónssonar. Æfingarnar fara fram í frjálsíþróttahöllinni í Laugardal.

Á námskeiðinu verður farið í flestar greinar frjálsíþrótta en einnig verður ýmislegt fleira skemmtilegt gert í hópnum.

Allar frekari upplýsingar veitir Ingólfur í síma 8678500 eða á ingolfur@mr.is

Mynd af frjalsithrottaaefingar 2