Evrópudagur talþjálfunar

Í dag, 6. mars, er Evrópudagur talþjálfunar og er dagurinn í ár tileinkaður fjöltyngi og fjölmenningu. Yfirskrift dagsins: Ólík tungumál, ólík menning, sömu boðskipti. Af því tilefni hefur Félag talmeinafræðinga á Íslandi (www.talmein.is) tekið saman gagnlegar upplýsingar um tvítyngi, bæði upplýsingavefi, bæklinga, rannsóknir og tilvísanir í nýlegar bækur og greinar, sjá hér.