Á aðalfundi Umsjónarfélags einhverfra þann 30. apríl sl. var sam þykkt að breyta nafni félagsins í Einhverfusamtökin. Þegar
félagið var stofnað árið 1977 voru það foreldrar og fagfólk á BUGL sem stóðu að stofnuninni og fékk félagið
nafnið Umsjónar og áhugamannafélag einhverfra barna og á fyrsta aðalfundi félagsins 1978 var nafninu breytt í Umsjónarfélag einhverfra
barna. Á þeim tíma fengu þeir einir greiningu á einhverfurófi sem þurftu mikla umönnun og aðstoð. Í kringum
1990(nákvæmar heimildir vantar) var orðið „barna“ fellt út úr nafni félagsins þar sem markhópur félagsins var ekki
eingöngu börn.
Á síðustu árum hefur orðið mikil fjölgun á greiningum fullorðinna og margir eru að fá greiningarnar Aspergersheilkenni eða
ódæmigerð einhverfa. Þessi hópur er orðinn virkur í starfi félagsins, situr í stjórn og nefndum og hefur mikið fram að
færa varðandi málefni einhverfra. Því var talin þörf á að finna félaginu nafn sem næði yfir alla félagsmenn. Vonum við
að það hafi tekist með þessari nafnbreytingu.
Stjórn Einhverfusamtakanna