Dagskrá Vorráðstefnu 2011 er komin út - Grand hóteli 12. og 13. maí

Efni: Siðfræði og samstarfVorradstefna-2011

Sjá dagskrá -> smellið hér

Fjallað verður um efni ráðstefnunnar í fyrirlestrum báða morgnana. Meðal annars verður fjallað um meðferð persónuupplýsinga í almennu starfi og þegar grunur vaknar um aðstæður sem kalla á afskipti barnaverndar. Þá verður fjallað um mannauð í þjónustu við fatlað fólk, samskipti fagfólks innbyrðis, við skjólstæðinga og fjölskyldur þeirra, m.a. með mismunandi fjölskyldugerðir í huga. Leiðsögn um þjónustukerfið og valdefling foreldra verður einnig á dagskrá.

Eftir hádegi fyrri daginn skiptist ráðstefnan í tvo fundi undir heitinu ?Frá greiningu til íhlutunar". Á öðrum fundinum verða kynntar leiðir til að þróa einstaklings námsskrár út frá færnimiðuðum matstækjum fyrir börn á leikskólaaldri og á hinum verða kynntar leiðir til að vinna með niðurstöður greininga til hagsbóta fyrir börn með þroskaraskanir á grunnskólaaldri.

Í lok dagsins verður fyrirlestur, þar sem fjallað verður um efnið: ?Þroska- og hegðunarvandamál barna á skólaaldri ? næstum því ?normal?.

Eftir hádegi seinni daginn verða einnig tveir fundir, þar sem fagfólki gefst kostur á að kynna niðurstöður rannsókna og þróunarverkefna og segja frá nýjungum í starfi.

Kynningar í andyri - veggspjöld -> smellið hér

Skráning á ráðstefnuna -> smellið hér

Skráningu lýkur 5. maí