Auglýst eftir kynningum á vorráðstefnu Greiningarstöðvar, 6. og 7. maí

 

 

Árleg vorráðstefna Greiningar- og ráðgjafarstöðvar ríkisins verður haldin á Grand hóteli 6. og 7. maí 2010. Titillinn að þessu sinni verður ?Gildi og gæði í þjónustu við fötluð börn?.

Við höfum áhuga á að skapa vettvang á ráðstefnunni fyrir fagfólk til að kynna ný íslensk rannsóknar- og þróunarverkefni á sviði fatlana barna. Því viljum við bjóða aðstandendum slíkra verkefna að kynna þau í stuttum fyrirlestrum eða á veggspjöldum.

Greiningarstöðin leitar hér með eftir þátttöku þeirra sem hafa hug á að kynna rannsóknar- og þróunarverkefni sín á þessum vettvangi. Einnig eru ábendingar um áhugaverð verkefni vel þegnar.

Óskað er eftir lýsingu á verkefni ásamt eftirfarandi upplýsingum: Titill verkefnis, nafn/nöfn höfunda, nafn þess sem flytur kynninguna, starfsheiti, vinnustað og netfang.

Viðmið við frágang

  1. Fyrsta nafnið skal vera nafn þess höfundar sem er í forsvari fyrir kynninguna.
  2. Stutt lýsing á verkefni, markmiði, leiðum og helstu niðurstöðum.
  3. Hámarks lengd miðast við 2.000 slög (með bilum) með letrinu Arial 10p í word skjali
  4. Kynningin verður prentuð í ráðstefnugögnin eins og hún er send inn.

Munnlegar kynningar
Lengd hverrar kynningar verður um 15 mínútur. Glærur kynninganna verða settar á heimasíðu Greiningarstöðvar www.greining.is

Veggspjöld
Stærð veggspjalda skal vera: hæð 120 cm og breidd 90 cm (mega vera minni).

Tillögur skulu sendar í viðhengi á netfang: bryndis@greining.is, fyrir 1. mars n.k. merkt: Vorráðstefna Greiningar- og ráðgjafarstöðvar ríkisins 2010. Svör munu berast höfundum fyrir lok mars. Gert er ráð fyrir að endanleg dagskrá liggi fyrir í byrjun apríl.