Auglýst eftir kynningum á vorráðstefnu!


Árleg vorráðstefna Greiningar- og ráðgjafarstöðvar ríkisins verður haldin á Grand hóteli 10. og 11. maí 2012. Titillinn að þessu sinni verður ?Íhlutun í æsku ? ábati til framtíðar?.

Eins og áður verður þar skapaður vettvangur fyrir fagfólk til að kynna ný íslensk rannsóknar- og þróunarverkefni, ásamt nýjungum í starfi á sviði fatlana barna.

Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins býður aðstandendum slíkra verkefna að kynna þau í 15 mín. fyrirlestrum eða á veggspjöldum. Einnig eru ábendingar um áhugaverð verkefni vel þegnar.

Óskað er eftir lýsingu á verkefni ásamt eftirfarandi upplýsingum: Titill verkefnis, nafn/nöfn höfunda, nafn þess sem flytur kynninguna, starfsheiti, vinnustaður og netfang.

Frágangur á innsendum kynningum:
1.    Fyrsta nafnið skal vera nafn þess höfundar sem er í forsvari fyrir kynningunni.
2.    Stutt lýsing á verkefni, markmiði, leiðum og helstu niðurstöðum.
3.    Hámarks lengd miðast við 2.000 slög (með bilum) með letrinu Arial 10p í word skjali.
4.    Verði kynning samþykkt verður hún prentuð í ráðstefnugögn eins og hún er send inn.

Kynningar verða með tvennum hætti:

Munnlegar kynningar
Lengd hverrar kynningar verður 15 mínútur. Glærur kynninganna verða settar á heimasíðu
Greiningarstöðvar.

Veggspjöld
Stærð veggspjalda skal vera: hæð 120 cm og breidd 90 cm (mega vera minni).

Tillögur skulu sendar í viðhengi á netfangið: gudny@greining.is, fyrir 10. mars n.k. merkt: Vorráðstefna Greiningar- og ráðgjafarstöðvar ríkisins 2012. Rannsóknarnefnd stofnunarinnar velur úr innsendum tillögum og gert er ráð fyrir að endanleg dagskrá liggi fyrir í byrjun apríl.

Fyrir hönd undirbúningshóps,
Guðný Stefánsdóttir
Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins.

Vorráðstefna 2012