PECS framhaldsnámskeið þann 24.mars nk.

PECS framhaldsnámskeið verður haldið í Reykjavík, 24.mars frá klukkan 9:00– 12:30. Námskeiðið er ætlað þeim sem hafa þekkingu á fyrstu þremur stigunum í PECS. Aðaláherslan á þessu námskeiði verður á eftirfarandi þætti í PECS þjálfun: Kynnt verða markmið og aðferðir við innlögn á seinni stigum PECS þ.e. stig 4, 5 og 6.

Kynnt verður PECS app fyrir Ipad. Rætt verður um skráningar á framvindu PECS þjálfunar Sýnd verða dæmi um PECS þjálfun á myndböndum og hugmyndir af ýmiskonar þjálfunargögnum verða kynnt fyrir þátttakendum. Farið verður yfir ýmsar hugmyndir og leiðir til þess að fjölga tækifærum til boðskipta og auka líkur á góðri alhæfingu á færni til að nota PECS í öllum daglegum aðstæðum.

Athugið að námskeið þetta er ekki í skipulagt af Ráðgjafar- og greiningarstöð. Umsjón með námskeiðinu hefur Sigrún Kristjánsdóttir þroskaþjálfi/ráðgjafi Þátttökugjald er 15.000 (foreldri greiðir 10 þúsund). Þátttakendur eru beðnir um að skrá sig á námskeiðið með því að senda tölvupóst á diddakr@internet.is fyrir mánudaginn 14. mars.