Opið fyrir skráningar á Vorráðstefnu í apríl

Árleg Vorráðstefna Greiningar- og ráðgjafarstöðvar verður haldin 29.-30. apríl næstkomandi. Yfirskrift ráðstefnunnar er: Börn með fatlanir - Viðhorf og valdefling.

Búið er að opna fyrir snemmskráningu á ráðstefnuna hér. Ráðstefnan verður haldin á Hilton Reykjavík Nordica eins og undanfarin ár en ráðstefnunni verður einnig streymt eins og í fyrra.

Á ráðstefnunni verða viðhorf og valdefling fatlaðra barna í brennidepli. Meðal annars verður verkefni sem unnið var á vegum Embættis umboðsmanns barna kynnt sem kallast Raddir fatlaðra barna. Eiður Welding fötlunarfræðari segir frá sinni reynslu, fulltrúar úr Ungmennaráði Þroskahjálpar kynna sín áherslumál og Atli Lýðsson mun segja frá fjölskyldubúðum sem haldnar voru í Vík í Mýrdal síðastliðið sumar. Einnig verður fjallað um fjölbreyttar birtingarmyndir þroskahömlunar og hvernig framfarir í erfðafræði geta nýst við ráðgjöf og meðferð þroskaraskana. Sjaldgæfir fötlunarhópar fá rými í dagskránni m.a. verður sagt frá þjónustu fyrir blind og sjónskert börn og kynntar niðurstöður tilviksrannsóknar um lífsgæði heyrnarlausra barna og unglinga. Til umfjöllunar verður kynheilbrigði og kynfræðsla, leiðir fyrir fötluð ungmenni til samskipta gegnum tölvu- og hlutverkaleiki og kynntar nýjungar í upplýsingatækni við stuðnings- og sérkennslu.

Dagskrá ráðstefnunnar verður kynnt síðar. Miðað er við núverandi samkomutakmarkanir og að 100 manns geti verið í ráðstefnusal hótelsins í tveimur hólfum. Að sjálfsögðu er ótakmarkað pláss í streymi.