Brennur þú fyrir verkefnum tengdum þroskaframvindu barna?

Ráðgjafar- og greiningarstöð auglýsir laust til umsóknar starf ráðgjafa á Eldri barna sviði. Sviðið veitir þjónustu vegna barna á grunn- og framhaldsskólaaldri. Leitað er að einstaklingi sem hefur brennandi áhuga á að starfa að fjölbreyttum verkefnum tengdum þroskaframvindu barna með þverfaglegu teymi starfsfólks stofnunarinnar.

Helstu verkefni og ábyrgð:
Ráðgjöf og eftirfylgd til fjölskyldna og fagfólks vegna barna og ungmenna með þroskafrávik.
Vinna í þverfaglegum teymum innan og utan stofnunar, m.a. varðandi ráðgjöf, greiningar og eftirfylgd.
Þátttaka í fræðslustarfi innan og utan stofnunar.
Þátttaka í rannsóknastarfi

Hæfniskröfur:
Háskólapróf eða sambærilegt próf sem nýtist í starfi, t.d. í þroskaþjálfafræði, tengt kennslu/sérkennslu, sálfræði, iðjuþjálfunarfræði eða hagnýtri atferlisgreiningu.
Þekking og/eða reynsla sem nýtist í starfi.
Reynsla og/eða þekking á greiningar- og matstækjum varðandi þroska, hegðun, líðan og færni barna og ungmenna er æskileg.
Mjög góð samskipta- og samstarfshæfni.
Hæfni og geta til að starfa í teymi.
Góð færni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku.
Skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.

Frekari upplýsingar um starfið:
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Umsókn um starfið skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi til að gegna starfinu. Sótt er um starfið á starfatorg.is. Miðað er við að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsókn getur gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar þessarar.

Á Ráðgjafar- og greiningarstöð starfa um 60 starfsmenn. Hlutverk stofnunarinnar er að tryggja að börn með alvarlegar þroskaskerðingar sem leitt geta til fötlunar síðar á ævinni fái greiningu, ráðgjöf og önnur úrræði sem bæta lífsgæði þeirra. Sjá nánar www.rgr.is. Ráðgjafar- og greiningastöð er framsækin stofnun með fjölskylduvæna starfsmannastefnu sem býður m.a. upp á sveigjanlegan vinnutíma. Lögð áhersla á þróun í starfi og tækifæri til sí- og endurmenntunar. Gildi stofnunarinnar eru fagmennska, framsækni, velferð og virðing.

Nýir starfsmenn fá handleiðslu og starfsþjálfun á aðlögunartíma.
Starfshlutfall er 80-100%.
Umsóknarfrestur er til og með 09.10.2023.

Nánari upplýsingar veitir:
Guðrún Þorsteinsdóttir, gudrun.thorsteinsdottir@rgr.is