Kennum nýja færni (0424)

Staðsetning: Bókasafn Kópavogs, Hamraborg 6a. 

Dagsetning og tími: 16. apríl 2024 kl. 9:00 - 15:00. 7 kennslustundir.

Verð: Fagaðili: 24.600

Hverjum er námskeiðið ætlað?
Er ætlað aðstandendum, starfsfólki og ráðgjöfum vegna leikskólabarna sem mögulega hafa frávik í þroska.Áhersla er lögð á hvað barnið getur gert nú og hvaða færni við getum kennt barninu sem gagnast því ásamt því að fyrirbyggja og minnka óæskilega hegðun í vinnu með börnum á leikskólaaldri.

Hámarksfjöldi þátttakenda:
Á þessu námskeiði er hámarksfjöldi þátttakenda 14.

Lýsing:
Farið er yfir helstu hugtök og aðferðir við kennslu nýrrar færni og hvernig minnka má óæskilega hegðun í vinnu með börnum á leikskólaaldri.

Markmið:

að þátttakendur þekki leiðir til að fyrirbyggja og draga úr óæskilegri hegðun barna með þroskafrávik 

Umsjón, skipulagning og kennsla: 
Anna Marín Skúladóttir, atferlisfræðingur, Eva Ýr Heiðberg, atferlisfræðingur, Herdís Ingibjörg A. Svansdóttir atferlisfræðingur, Katrín Sveina Björnsdóttir atferlisfræðingur, Lilja Árnadóttir atferlisfræðingur. 

Námskeiðsgjöld og greiðsluskilmálar
Skráningu á námskeiðið Kennum nýja færni  lýkur 12. apríl 2024, en hægt verður að skrá sig á biðlista eftir það ef það er laust pláss. Eingöngu er hægt að ljúka skráningu með debet- eða kreditkortagreiðslu. 

Forföll/afskráningu þarf að tilkynna skriflega viku fyrir námskeiðsdag með því að senda tölvupóst á fraedsla@rgr.is og fær þá skráður þátttakandi fulla endurgreiðslu. 

Nánari upplýsingar um greiðsluskilmála ásamt skráningar- og umsýslugjaldi má finna hér.