Greiningar- og ráðgjafastöð ríkisins

Greiðsluskilmálar fyrir námskeið Greiningar- og ráðgjafarstöðvar ríkisins.

Reglur um námskeiðsgjöld

Skráning á námskeið er skuldbindandi og jafngildir samningi um greiðslu á námskeiðsgjaldi. Ná þarf lágmarksþátttöku á námskeið svo námskeið verði haldið.

Þátttakandi sem er skráður á námskeið en hættir við að sitja það skal tilkynna forföll með skriflegum hætti á netfangið fraedsla@greining.is með tveggja vikna fyrirvara.

Greiðslutilhögun

Skráningu á námskeið lýkur tveimur vikum fyrir námskeiðsdag og þá eru greiðsluseðlar sendir í innheimtu.

Þátttakendur þurfa að vera búnir að greiða fyrir þátttöku á eindaga sem er u.þ.b. viku fyrir námskeið.

Forföll og innheimta umsýslu- og skráningargjalds

Nauðsynlegt er að tilkynna forföll eins fljótt og auðið er. Þátttakandi sem er skráður á námskeið en hættir við að sitja það skal tilkynna forföll með skriflegum hætti á netfangið fraedsla@greining.is a.m.k. tveimur vikum fyrir áætlaðan námskeiðsdag eða áður en skráningu lýkur.

Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins áskilur sér rétt til þess að innheimta skráningar- og umsýslugjald ef tilkynning berst eftir að skráningu á námskeið er lokið.

Skráningar- og umsýslugjald fer eftir lengd námskeiðs og hvort um fagaðila eða aðstandanda er að ræða.

tafla i greidsluskilmala

Fyrirspurnir

Hafir þú einhverjar spurningar varðandi skráningar á námskeið eða greiðsluskilmála þá endilega hafðu samband við starfsfólk fræðslusviðs með tölvupósti á fraedsla@greining.is eða í síma 510-8400.








neðavarl



Þetta vefsvæði byggir á Eplica