Náttúruleg kennsla (1122)

Staðsetning: Menningarmiðstöðin í Gerðubergi
Dagsetning og tími:  9. nóvember, kl.  9:00-15:00.
Verð: 8.900 kr. Námskeiðið er einungis ætlað fólki sem hefur tekið þátt í námskeiðinu Atferlisíhlutun fyrir börn með þroskafrávik

Hverjum er námskeiðið ætlað?
Námskeiðið er ætlað fagaðilum, starfsfólki á leikskólum sem sinna stuðningi við börn með þroskafrávik og aðstandendum  

Hámarksfjöldi þátttakenda
Á þessu námskeiði er hámarksfjöldi þátttakenda 30.

Lýsing:
Fjallað verður um hvað náttúruleg kennsla er og hvernig er hægt að nýta hana til að ýta undir þroska barnsins. Kynntar verða leiðir til að kenna börnum nýja færni í tjáningu og félagsfærni og draga úr óæskilegri hegðun í daglegum aðstæðum. Farið er yfir hvernig er hægt að nýta daglegar aðstæður til að skapa tækifæri til markvissrar kennslu.

Námskeiðið byggir á fyrirlestrum, myndböndum, verkefnum og verklegum æfingum.

Að þátttakendur:

  • dýpki þekkingu sína og færni í notkun náttúrulegrar kennslu
  • beri kennsl á tækifæri í daglegum aðstæðum til að ýta undir þroska, svo sem tjáningu og félagsfærni barna

Umsjón, skipulagning og kennsla: 
Anna Marín Skúladóttir, atferlisfræðingur, Eva Ýr Heiðberg, atferlisfræðingur, Herdís Ingibjörg A. Svansdóttir, Katrín Sveina Björnsdóttir atferlisfræðingur, Lilja Árnadóttir atferlisfræðingur.