Vorráðstefnu 2014 lokið

XXIX. vorráðstefna Greiningar- og ráðgjafarstöðvar ríkisins var haldin dagana 15. og 16. maí s.l. Ráðstefnan hefur verið árviss atburður frá því að stofnunin tók til starfa árið 1986.

Yfirskrift að þessu sinni var „Fjölskyldumiðuð þjónusta – Ávinningur og áskorannir“ og var fjallað um efnið út frá margvíslegum sjónarhornum. Um það bil 250 fagmenn og foreldrar hlýddu á fyrirlestra og tóku þátt í málstofum. Á matsblöðum sem ráðstefnugestir skiluðu í lokin kemur meðal annars fram ánægja með efni, fyrirlesara og framkvæmd ráðstefnunnar.

Í lok ráðstefnunnar tilkynnti forstöðumaður að 30. vorráðstefnan yrði haldin 7. og 8. maí 2015 með yfirskriftinni „Lífshlaup barna með fötlun – Frá bernsku til fullorðinsára“.

Starfsmenn Greiningar- og ráðgjafarstöðvar ríkisins þakka fyrirlesurum, fundarstjórum og gestum fyrir samveruna og við hlökkum til að sjá ykkur að ári.

Glærur verða birtar á heimasíðunni á næstu dögum.