Veitt úr styrktarsjóði Greiningar- og ráðgjafarstöðvar

Styrkþegar 2016 ásamt Ásgeiri og Helga Frey
Styrkþegar 2016 ásamt Ásgeiri og Helga Frey

Í dag þann 8. júní voru veittir styrkir úr styrktarsjóði Greiningar- og ráðgjafarstöðvar ríkisins til minningar um Þorstein Helga Ásgeirsson. Sjóðurinn var stofnaður 8. júní 1995 en þann dag hefði Þorsteinn Helgi orðið 5 ára gamall. Hann lést 20. janúar 1995. Frumkvöðlar að stofnun sjóðsins voru móðurbræður Þorsteins Helga, þeir Gunnar, Sveinn og Guðmundur Hanssynir, en foreldrar hans, Magnea Hansdóttir og Ásgeir Þorsteinsson, lögðu sjóðnum einnig til stofnfé. Sjóðurinn aflar fjár með sölu samúðarkorta.

Markmið styrktarsjóðsins er að stuðla að aukinni þekkingu á þroskaröskunum og fötlunum barna með því að styrkja fagfólk til framhaldsmenntunar og rannsóknarstarfa. Veitt er árlega úr sjóðnum á fæðingardegi Þorsteins Helga, þann 8. júní. Hefur starfsfólk Greiningarstöðvar ríkisins að jafnaði forgang að styrkjum.

Að þessu sinni hlutu eftirtaldir starfsmenn styrki: Katrín Einarsdóttir, Silja Björk Egilsdóttir, Unnur Jakobsdóttir Smári, Sigrún Hjartardóttir og Þóra Leósdóttir, allar til þátttöku í Evrópuráðstefnu um einhverfu sem haldin verður í Edinborg 16-18 september næst komandi. Helgi Freyr Ásgeirsson bróðir Þorsteins Helga afhenti styrkina.

Starfsfólk Greiningarstöðvar þakkar fjölskyldu Þorsteins Helga þann hlýhug og velvild sem þau sýna starfsemi og starfsfólki stofnunarinnar. Styrktarsjóðurinn gefur starfsfólki mikilvæg tækifæri til aukinnar menntunar og þekkingar.