Bókin „Litróf einhverfunnar“ er komin út. Fyrsta eintak afhent ráðherra

Í dag er útgáfudagur nýrrar bókar um einhverfu "Litróf einhverfunnar". Fyrsta eintak bókarinnar var afhent Eygló Harðardóttur félags- og húsnæðismálaráðherra  í velferðarráðuneytinu í morgun.

Eftir heimsókn í ráðuneytið var haldið til Einhverfusamtakanna og Sjónarhóls og forsvarsmönnum þeirra samtaka afhent eintök.

Bókin Litróf einhverfunnar er sú fyrsta sinnar tegundar hér á landi. Einhverfa er heilkenni sem felst í óvenjulegri heilastarfsemi og birtist einkum í takmarkaðri færni í félagslegum samskiptum, sérstakri skynjun, ásamt endurtekningarsamri hegðun og þröngu áhugasviði. Bókin er samin af starfsmönnum Greiningar- og ráðgjafarstöðvar ríkisins og gefin út af Háskólaútgáfunni. Ritstjórar eru Sigríður Lóa Jónsdóttir og Evald Sæmundsen. Fjallað er um greiningu á einhverfu, orsakir hennar og meðraskanir, framvindu og horfur, meðferð, þjónustu, fjölskyldur, líf og reynslu einhverfra. Sjónum er einkum beint að börnum og unglingum, en þó einnig að öðrum aldurshópum. Þá eru í bókinni nýjar upplýsingar um sögu einhverfu á Íslandi.

Tíðni einhverfu hefur aukist verulega á undanförnum áratugum og hefur sú aukning vakið upp áleitnar spurningar,  jafnvel tortryggni bæði innan vísindasamfélagsins og í þjónustugeiranum. Samfara því hefur umfjöllun um einhverfu aukist gríðarlega á heimsvísu á sviði vísindarannsókna, lista og menningar og í fjölmiðlum en einnig meðal hagsmunasamtaka, foreldra og einstaklinga með einhverfu sem tjá sig opinberlega í æ ríkari mæli. Bókin er hugsuð fyrir foreldra og aðra ættingja, einhverfa fólkið sjálft, þá sem tengjast einhverfum í starfi, nemendur í framhaldsskólum og á neðri stigum háskóla, svo og aðra sem hafa áhuga á einhverfu.

Á meðfylgjandi mynd eru ritstjórarnir Evald Sæmundsen og Sigríður Lóa Jónsdóttir ásamt Eygló Harðardóttur félags- og húsnæðismálaráðherra.

Fleiri myndir má finna hér Litróf einhverfunar

Bókin fæst hjá Bóksölu Stúdenta og í öllum helstu bókaverslunum landsins.