Einhverfurófið – grunnnámskeið (fjarkennsla - 0324)

Einhverfurófið, grunnnámskeið  - fjarkennsla (zoom)

Dagsetning og tími: 18. mars 2024 kl. 9:00 - 14:00. 
6 kennslustundir.

Verð: Fagaðili: 21.200.-  Aðstandandi: 6300.-

Hverjum er námskeiðið ætlað?

Námskeiðið er ætlað aðstandendum og starfsfólki sem sinnir umönnun, þjálfun og kennslu barna á einhverfurófi.

Hámarksfjöldi þátttakenda:
Á þessu námskeiði er hámarksfjöldi þátttakenda 50.

Lýsing námskeiðs:
Fjallað er um einhverfurófið, helstu einkenni einhverfu og birtingarform þeirra, greiningu, álag á fjölskylduna og samstarf foreldra og fagfólks. Námskeiðið byggist aðallega á fyrirlestrum og umræðum, auk fræðslumyndbanda. Námskeiðið er hugsað sem fyrsta skrefið í fræðslu um einhverfu og grunnur að öðrum námskeiðum með afmarkaðari viðfangsefnum. Kennslu- og meðferðarleiðir verða til dæmis ekki kynntar á þessu námskeiði. 

Markmið námskeiðsins er að þátttakendur:

  • auki þekkingu sína á einhverfurófinu
  • þekki hvað felst í greiningu á einhverfu
  • auki skilning sinn á þörfum þessa hóps barna og fjölskyldna þeirra og hvað felst í góðri þjónustu
  • þekki mikilvægi samstarfs fagfólks og foreldra   

Umsjón:
Guðrún Þorsteinsdóttir félagsráðgjafi, Ingibjörg Bjarnadóttir, barnalæknir og Svandís Ása Sigurjónsdóttir sálfræðingur. 

Námskeiðsgjöld og greiðsluskilmálar

Skráningu á námskeiðið Einhverfurófið - grunnnámskeið lýkur 14. mars 2024, en hægt verður að skrá sig á biðlista eftir það ef það er laust pláss. Eingöngu er hægt að ljúka skráningu með debet- eða kreditkortagreiðslu. 

Forföll/afskráningu þarf að tilkynna skriflega viku yrir námskeiðsdag með því að senda tölvupóst á fraedsla@greining.is og fær þá skráður þátttakandi fulla endurgreiðslu. 

Nánari upplýsingar um greiðsluskilmála ásamt skráningar- og umsýslugjaldi má finna hér.