Upplýsingar um kóróna-veiruna á auðskildu máli

Landssamtökin Þroskahjálp hafa í samvinnu við landlækni og heilbrigðisráðuneytið búið til upplýsingabækling um kóróna-veiruna á auðlesnu máli. Það er mikilvægt að allir fái réttar og góðar upplýsingar um kóróna-veiruna, líka fólk með þroskahömlun. Smelltu hér til að skoða bæklinginn. 

Í bæklingnum kemur eitt og annað fram um uppruna og einkenni veikinda af völdum veirunnar, upplýsingar um sóttkví, handþvott og þær leiðir sem eru bestar til að forðast smit.