Upplýsingar um Covid-19 má finna á níu erlendum tungumálum

Greiningar- og ráðgjafarstöð vekur athygli á að foreldrar og aðstandendur barna af erlendum uppruna geta nálgast upplýsingar um kórónaveiruna og Covid-19 á vefsíðunni covid.is á níu erlendum tungumálum.

Á síðunni má fá upplýsingar um merkingu samkomubanns, sóttkvíar, einangrunar auk upplýsinga um skólahald fyrir börn og fleiri hópa.