Ungmenni með einhverfu og önnur þroskafrávik - Gerðubergi

Hverjum er námskeiðið ætlað?
Námskeiðið er ætlað foreldrum, aðstandendum og þeim sem starfa með ungmennum frá 13 ára aldri. Hér má nefna kennara, sérkennara, námsráðgjafa, þroskaþjálfa og iðjuþjálfa sem starfa innan grunn- og framhaldsskóla. Einnig ráðgjöfum hjá skóla- og félagsþjónustu sveitarfélaga auk fagfólks innan heilsugæslu.

Hámarksfjöldi þátttakenda
Á þessu námskeiði er hámarksfjöldi þátttakenda 30 manns.

Lýsing
Fjallað verður um ódæmigert þroskaferli, styrkleika, áskoranir og hvernig það er að vera öðruvísi.  Rætt verður um áhrifaþætti varðandi sjálfsmynd, líðan, samskipti og tengsl við geðheilsu svo sem kvíða og þunglyndi. Ennfremur verður farið yfir samspil þroska og færni í daglegu lífi og hvernig skipulag og aðlögun umhverfis getur stuðlað að aukinni þátttöku og lífsgæðum ungmenna í þessum hópi.

Farið verður yfir hvort greining feli í sér létti eða sorg og hvaða þýðingu hún hefur fyrir viðkomandi einstakling, fjölskyldu hans og nærsamfélagið. Fjallað verður um viðurkennt verklag í þjónustu auk þess sem foreldri mun segja frá eigin reynslu. Námskeiðið er byggt á fyrirlestrum og umræðum.

Markmið
Að þátttakendur:

  • efli þekkingu sína á þörfum ungmenna með frávik í þroska
  • auki hæfni sína til að takast á við ýmsar áskoranir í daglegu lífi
  • geti miðlað þekkingu til fjölskyldu eða samstarfsfólks
  • tileinki sér jákvæð viðhorf

 

Umsjón
Laufey I. Gunnarsdóttir þroskaþjálfi og Elín Konráðsdóttir félagsráðgjafi