Talmeinafræðingur óskast

Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins auglýsir laust til umsóknar starf talmeinafræðings á Eldri barna sviði. Á sviðinu er veitt þjónusta við börn á grunn- og framhaldsskólaaldri og fjölskyldur þeirra.

 Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Mat á málþroska og færniþáttum sem tengjast honum með stöðluðum próf- og matstækjum og klínískum athugunum
  • Úrvinnsla prófgagna, túlkun niðurstaðna, skráning og skýrslugerð
  • Ráðgjöf og eftirfylgd vegna barna og unglinga með málþroskaraskanir
  • Fræðsla til barnsins/unglingsins sjálfs
  • Þróun og innleiðing nýrra matstækja sem henta viðkomandi aldri
  • Vinna í þverfaglegum teymum innan og utan stofnunar, m.a. varðandi greiningu, ráðgjöf og eftirfylgd vegna barna á einhverfurófi og með önnur frávik í taugaþroska
  • Þátttaka í fræðslustarfi innan og utan stofnunar 

Hæfniskröfur:

  • Íslenskt starfsleyfi sem talmeinafræðingur
  • Þekking og/eða reynsla sem nýtist í starfi
  • Sérþekking á málþroska  barna/unglinga á einhverfurófi
  • Mjög góð samskipta- og samstarfshæfni og færni til að starfa í teymi
  • Góð færni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku
  • Skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum

 Frekari upplýsingar um starfið:

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert. Umsókn um starfið skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi til að gegna starfinu. Sótt er um starfið á starfatorg.is. Miðað er við að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsókn getur gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar þessarar.

Á Greiningar- og ráðgjafarstöð starfa um 60 starfsmenn. Hlutverk stofnunarinnar er að tryggja að börn með alvarlegar þroskaskerðingar sem leitt geta til fötlunar síðar á ævinni fái greiningu, ráðgjöf og önnur úrræði sem bæta lífsgæði þeirra. Sjá nánar www.greining.is. Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins er framsækin stofnun með fjölskylduvæna starfsmannastefnu sem býður m.a. upp á sveigjanlegan vinnutíma.  Gildi stofnunarinnar eru fagmennska, framsækni, velferð og virðing. 

Nýir starfsmenn fá handleiðslu og starfsþjálfun á aðlögunartíma og er lögð áhersla á þróun í starfi og tækifæri til sí- og endurmenntunar.

Starfshlutfall er 40%. Umsóknarfrestur er til og með 25.06.2021. Nánari upplýsingar veitir: Guðrún Þorsteinsdóttir - gudrun.thorsteinsdottir@greining.is - 5108400. Smelltu hér til að sækja um starfið