Styrkveitingar úr sjóði til minningar um Þorstein Helga Ásgeirsson

Styrkþegar ásamt fjölskyldu Þorstein Helga.
Styrkþegar ásamt fjölskyldu Þorstein Helga.

Þriðjudaginn 10. júní síðastliðinn voru veittir styrkir úr Styrktarsjóði Greiningar- og ráðgjafarstöðvar ríkisins til minningar um Þorstein Helga Ásgeirsson. Sjóðurinn var stofnaður 8. júní 1995 en þann dag hefði Þorsteinn Helgi orðið 5 ára gamall. Hann lést 20. janúar 1995.

Frumkvöðlar að stofnun sjóðsins voru móðurbræður Þorsteins Helga, þeir Gunnar, Sveinn og Guðmundur Hanssynir, en foreldrar hans, Magnea Hansdóttir og Ásgeir Þorsteinsson, lögðu sjóðnum einnig til stofnfé. Sjóðurinn aflar fjár með sölu samúðarkorta.

Markmið styrktarsjóðsins er að stuðla að aukinni þekkingu á þroskaröskunum og fötlunum barna með því að styrkja fagfólk til framhaldsmenntunar og rannsóknarstarfa. Veitt er árlega úr sjóðnum á fæðingardegi Þorsteins Helga, þann 8. júní. Hefur starfsfólk Greiningar- og ráðgjafarstöðvar ríkisins að jafnaði forgang að styrkjum.

Að þessu sinni voru hlutu þrír starfsmenn styrki og eitt fagsvið innan Greiningar- og ráðgjafarstöðvar. Helga Kristín Gestsdóttir hlaut styrk til að ljúka réttindum sem viðurkenndur sérfræðingur í skipulagðri kennslu (TEACCH). Unnur Árnadóttir til náms hjá Endurmenntun Háskóla Íslands í í Verkefnastjórnun og leiðtogaþjálfun, Hólmfríður Ósk Arnalds til að koma á rannsóknarsamstarfi við University of North Texas varðandi ICT-þjálfunarpakkann og Langtímaeftirfylgd vegna fjölskyldudags í Reykjadal sem haldin verður í ágúst 2019.

Starfsfólk Greiningarstöðvar þakkar fjölskyldu Þorsteins Helga þann hlýhug og velvild sem þau hafa sýnt starfsemi og starfsfólki stofnunarinnar um árabil. Styrktarsjóðurinn gefur starfsfólki mikilvæg tækifæri til aukinnar menntunar og þekkingar innan fags og fræða.

Myndatexti, frá vinstri: Helga Kristín Gestsdóttir, Ásgeir Þorsteinsson, Helgi Freyr Ásgeirsson, Sveinn Nökkvi Guðlaugsson sem gaf hluta fermingarpeninganna sinna í sjóðinn, Helga Sveinsdóttir, Magnea Hansdóttir, Unnur Árnadóttir, Hólmfríður Ósk Arnalds með Steinunni Hörpu i fanginu og Hrönn Björnsdóttir sem veitti styrknum móttöku fyrir hönd Langtímaeftirfylgdar.