Styrkir veittir úr Styrktarsjóði Greiningar- og ráðgjafarstöðvar

Styrkþegar 2018 ásamt föður og bróður Þorsteins
Styrkþegar 2018 ásamt föður og bróður Þorsteins

Í dag voru veittir styrkir úr Styrktarsjóði Greiningar- og ráðgjafarstöðvar ríkisins til minningar um Þorstein Helga Ásgeirsson. Sjóðurinn var stofnaður 8. júní 1995 en þann dag hefði Þorsteinn Helgi orðið 5 ára gamall. Hann lést 20. janúar 1995.

Frumkvöðlar að stofnun sjóðsins voru móðurbræður Þorsteins Helga, þeir Gunnar, Sveinn og Guðmundur Hanssynir, en foreldrar hans, Magnea Hansdóttir og Ásgeir Þorsteinsson, lögðu sjóðnum einnig til stofnfé. Sjóðurinn aflar fjár með sölu samúðarkorta.

Markmið styrktarsjóðsins er að stuðla að aukinni þekkingu á þroskaröskunum og fötlunum barna með því að styrkja fagfólk til framhaldsmenntunar og rannsóknarstarfa. Veitt er árlega úr sjóðnum á fæðingardegi Þorsteins Helga, þann 8. júní. Hefur starfsfólk Greiningarstöðvar ríkisins að jafnaði forgang að styrkjum.

Að þessu sinni voru hlutu sjö starfsmenn styrki. Aðalheiður Una Narfadóttir leikskólasérkennari, Guðbjörg Björnsdóttir þroskaþjálfi, Helga Kristinsdóttir sálfræðingur og Þóranna Halldórsdóttir þroskaþjálfi hlutu styrki til að sækja fagráðstefnu í Bandaríkjunum um þarfir ungra fatlaðra barna og fjölskyldna þeirra. Laufey I. Gunnarsdóttir þroskaþjálfi einhverfuráðgjafi hlaut styrk til prentunar á upplýsingablöðum um stúlkur á einhverfurófi og áhugamál þeirra. Marrit Meintema sjúkraþjálfari fékk styrk til að sækja námskeið í Bandaríkjunum um skíðaþjálfun fatlaðra og Hrönn Björnsdóttir félagsráðgjafi hlaut styrk til að sækja ráðstefnu í Skotlandi um Downs heilkenni. Helgi Freyr Ásgeirsson bróðir Þorsteins Helga heitins afhenti styrkina.

Starfsfólk Greiningarstöðvar þakkar fjölskyldu Þorsteins Helga þann hlýhug og velvild sem þau hafa sýnt starfsemi og starfsfólki stofnunarinnar um árabil. Styrktarsjóðurinn gefur starfsfólki mikilvæg tækifæri til aukinnar menntunar og þekkingar innan fags og fræða.