Skjalastjóri óskast!

Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins (GRR) auglýsir laust til umsóknar starf skjalastjóra. Leitað er að einstaklingi með þekkingu og góða reynslu af skjalastjórnun til að hafa umsjón með þróun skjalastjórnunar og skjalavistunarmálum stofnunarinnar. Stærsta verkefnið framundan er að fylgja eftir reglum um skjalavistun, skráning, frágangur og skil á gögnum til Þjóðskjalasafns Íslands (ÞÍ).

Helstu verkefni
•          Skipulag og umsjón með skjalasafni GRR
•          Þróun og eftirfylgni á skjalastefnu og verklagi við skjalastjórn GRR
•          Þróun skjalavistunar og grisjunaráætlunar ásamt eftirfylgni
•          Umsjón með GoPro skjalavistunarkerfinu og handleiðsla starfsmanna í notkun á því
•          Skjala- og skráastýring vegna jafnlaunavottunar
•          Frágangur og skil á gögnum stofnunarinnar til ÞÍ

Menntunar- og hæfnikröfur:
•          Háskólapróf og menntun á sviði skjalastjórnunar
•          Reynsla af sambærilegum störfum er nauðsynleg
•          Þekking og reynsla af skjalavistunarkerfinu GoPro æskileg 
•          Mjög góð almenn tölvufærni
•          Gott vald á íslensku í ræðu og riti
•          Lipurð í mannlegum samskiptum og jákvætt viðmót
•          Frumkvæði og sjálfstæði í starfi

Ráðið verður í 80 - 100% til eins árs með möguleika á framlengingu. Miðað er við að viðkomandi hefji störf sem fyrst. Vegna kynjasamsetningar á vinnustaðnum eru karlmenn hvattir til að sækja um.

Laun og kjör eru skv. gildandi kjarasamningi ríkisins og viðkomandi stéttarfélags. Frekari upplýsingar gefur Soffía Lárusdóttir, forstöðumaður í síma 510 8400. Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf, berist Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins, Digranesvegi 5, 200 Kópavogi, eða í tölvupósti á soffia@greining.is fyrir 25. september 2020. Öllum umsóknum verður svarað.
_______________________________________

Hlutverk Greiningar- og ráðgjafarstöðvar ríkisins er að tryggja að börn með alvarlegar þroskaskerðingar sem leitt geta til fötlunar síðar á ævinni fái greiningu, ráðgjöf og önnur úrræði sem bæta lífsgæði þeirra, sjá nánar á www.greining.is.

Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins er framsækin stofnun með fjölskylduvæna starfsmannastefnu sem býður m.a. upp á sveigjanlegan vinnutíma. Nýir starfsmenn fá handleiðslu og starfsþjálfun á aðlögunartíma og er lögð áhersla á þróun í starfi og tækifæri til sí- og endurmenntunar.