Röskun á einhverfurófi I - grunnnámskeið

Röskun á einhverfurófi I - grunnnámskeið

Hverjum er námskeiðið ætlað?
Námskeiðið er ætlað aðstandendum og starfsfólki sem sinna umönnun, þjálfun og kennslu barna á einhverfurófi.

Hámarksfjöldi þátttakenda
Á þessu námskeiði er hámarksfjöldi þátttakenda 50.

Lýsing
Fjallað er um einhverfurófið, einkenni einhverfu og birtingarform þeirra, greiningu, álag á fjölskylduna og samstarf foreldra og fagfólks. Námskeiðið byggist aðallega á fyrirlestrum, fræðslumyndböndum og umræðum. Námskeiðið er hugsað sem fyrsta skrefið í fræðslu um einhverfu og grunnur að öðrum námskeiðum með afmarkaðari viðfangsefnum. Kennslu- og meðferðarleiðir verða til dæmis ekki kynntar á þessu námskeiði.

Markmið
Að þátttakendur:

  • auki þekkingu sína á einhverfurófinu
  • þekki hvað felst í greiningu á einhverfu
  • auki skilning sinn á þörfum þessa hóps barna og fjölskyldna þeirra og hvað felst í góðri þjónustu
  • þekki mikilvægi samstarfs fagfólks og foreldra

Umsjón
Guðrún Þorsteinsdóttir félagsráðgjafi og Svandís Ása Sigurjónsdóttir sálfræðingur.