Reglulegir spjallfundir ADHD samtakanna næstu vikur

Reglulegir spjallfundir ADHD samtakanna haustið 2019 verða á fimm miðvikudagskvöld fram að jólum kl. 20:30 - 22:00 í húsnæði ADHD samtakanna að Háaleitisbraut 13, 4. hæð. Allir eru velkomnir, enginn aðgangseyrir og heitt á könnunni. Umræðuefnin eru margvísleg en á næsta fundi þann 18. september nk.  verður fjallað um Betra líf með ADHD, síðar verður fjallað um ADHD og einelti, ADHD og lyf og hvernig er gott að undirbúa jólin fyrir aðstandendur barna og ungmenna með ADHD. Nánari upplýsingar eru á Facebook síðu ADHD samtakanna.