Rannsóknarstjóri óskast

Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins auglýsir laust til umsóknar starf rannsóknarstjóra. Rannsóknarstjóri framfylgir stefnu stofnunarinnar um þróun rannsóknarstarfs, hefur frumkvæði að rannsóknum og veitir ráðgjöf um málefni sem að þeim lúta. 

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Umsjón með rannsóknum sem unnar eru á stofnuninni
  • Er í forsvari fyrir rannsóknanefnd stofnunarinnar og tekur þátt í þróun gagnagrunns hennar
  • Þátttaka í innlendu og erlendu rannsóknarsamstarfi, þ.m.t. samstarf við háskóla
  • Þátttaka í nýsköpun og þróun þjónustunnar 

Hæfniskröfur: 

  • Doktorspróf sem nýtist í starfi
  • Þekking á tölfræði
  • Þekking á þroska og þroskafrávikum barna og ungmenna
  • Reynsla af rannsóknarstarfi  
  • Mjög góð samskipta- og samstarfshæfni
  • Góð færni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku og ensku
  • Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert. Umsókn um starfið skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi til að gegna starfinu. Sótt er um starfið á starfatorg.is. Miðað er við að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsókn getur gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar þessarar.

Á Greiningar- og ráðgjafarstöð starfa um 60 starfsmenn. Hlutverk stofnunarinnar er að tryggja að börn með alvarlegar þroskaskerðingar sem leitt geta til fötlunar síðar á ævinni fái greiningu, ráðgjöf og önnur úrræði sem bæta lífsgæði þeirra (sjá nánar á www.greining.is). Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins er framsækin stofnun með fjölskylduvæna starfsmannastefnu sem býður m.a. upp á sveigjanlegan vinnutíma.  Gildi stofnunarinnar eru fagmennska, framsækni, velferð og virðing. 

Nýir starfsmenn fá handleiðslu og starfsþjálfun á aðlögunartíma og er lögð áhersla á þróun í starfi og tækifæri til sí- og endurmenntunar. Starfshlutfall er 100%. Umsóknarfrestur er til og með 4.október 2021

Nánari upplýsingar veitir: 

Soffía Lárusdóttir - soffia.larusdottir@greining.is - 510 8400
Evald E Sæmundsen - evald.e.saemundsen@greining.is - 510 8400

Smelltu hér til að sækja um starfið