Ráðgjafi óskast!

Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins auglýsir laust til umsóknar starf ráðgjafa á Eldri barna sviði. Á sviðinu er veitt þjónusta við börn á grunn- og framhaldsskólaaldri og fjölskyldur þeirra. 

Helstu verkefni og ábyrgð:
 
  • Ráðgjöf og eftirfylgd til fjölskyldna og fagfólks vegna barna með alvarleg þroskafrávik
  • Vinna í þverfaglegum teymum innan og utan stofnunar, m.a. varðandi ráðgjöf, greiningu og eftirfylgd
  • Þátttaka í fræðslu- og rannsóknarstarfi
 Hæfniskröfur: 
  • Háskólapróf sem nýtist í starfi, t.d. í þroskaþjálfafræði, kennslu/sérkennslu, sálfræði, iðjuþjálfunarfræði eða hagnýtri atferlisgreiningu
  • Þekking og/eða reynsla sem nýtist í starfi
  • Reynsla og/eða þekking á greiningar- og matstækjum varðandi þroska, hegðun, líðan og færni barna er æskileg
  • Mjög góð samskipta- og samstarfshæfni og færni til að starfa í teymi
  • Góð færni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku
  • Skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum 
Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Umsókn um starfið skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi til að gegna starfinu. Sótt er um starfið á starfatorg.is. Miðað er við að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsókn getur gilt í sex mánuði frá birtingu auglýsingar þessarar.

Á Greiningar- og ráðgjafarstöð starfa um 60 starfsmenn. Hlutverk stofnunarinnar er að tryggja að börn með alvarlegar þroskaskerðingar sem leitt geta til fötlunar síðar á ævinni fái greiningu, ráðgjöf og önnur úrræði sem bæta lífsgæði þeirra. Sjá nánar www.greining.is. Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins er framsækin stofnun með fjölskylduvæna starfsmannastefnu sem býður m.a. upp á sveigjanlegan vinnutíma.  Gildi stofnunarinnar eru fagmennska, framsækni, velferð og virðing. 

Nýir starfsmenn fá handleiðslu og starfsþjálfun á aðlögunartíma og er lögð áhersla á þróun í starfi og tækifæri til sí- og endurmenntunar.

Starfshlutfall er 80-100%

Umsóknarfrestur er til og með 31.05.2021

Nánari upplýsingar veitir

Guðrún Þorsteinsdóttir - gudrun.thorsteinsdottir@greining.is - 5108400

Smelltu hér til að sækja um starfið