PECS myndrænt boðskiptakerfi - grunnnámskeið í október 2018

PECS námskeið í október
PECS námskeið í október

Dagana 9. og 10. október næst komandi verður haldið námskeið í PECS, myndrænu boðskiptakerfi. Námskeiðið er haldið í Reykjavík frá kl. 09:00 - 12:00 báða dagana. Á námskeiðinu verður fjallað um fræðilegan grunn og þær aðferðir sem eru notaðar til að þjálfa stigin sex í PECS.

Megin áhersla á þessu námskeiði verður lögð á að þátttakendur læri innlögn og þjálfun á fyrstu þremur stigum PECS. Auk þess verða kynntar leiðir til að skrá framvindu og meta árangur þjálfunarinnar.

Kennslan fer fram með fyrirlestrum, umræðum og sýnikennslu. Sýnd verða dæmi um PECS þjálfun á myndböndum og þátttakendur fá tækifæri til að æfa grunnatriðin í þjálfunartækninni. Umsjón hefur Sigrún Kristjánsdótt þroskaþjálfi.

Þátttökugjald er 22.000  (foreldri greiðir 15.000). Skráning á diddakr@internet.is fyrir mánudaginn 1. október

Sjá auglýsingu hér